22.02.2012 16:23

Ný facebook síða!

Nú erum erum við feðgar búnir að koma okkur upp síðu á Facebook. Viljum við endilega biðja ykkur að læka síðuna hér að neðan eða á facebook. Þar munum við birta myndir og myndbönd af hestunum okkar ásamt fleiri skemmtilegum hlutum. 

We have now made a Facebook page for our breeding and we will post there pictures and videos of our horses along with other entertaining things. Please "like" our page here below or directly on Facebook. 

Kveðja,
Einar og Gísli

19.02.2012 21:31

Tamningar febrúar 2012


Tamningar í Torfunesi ganga vel. Á húsi eru 4 hross; Stuðlar Hraunusonur, Hrauney Aronsdóttir, Hella Rökkvadóttir og Freyja Klettsdóttir. Öll hross í góðri framför og á góðu róli. Um helgina tókum við nokkrar myndir af Stuðlari sem er að koma til. Hann er farinn að tölta vel á köflum. Best er að vísa í þær myndir sem við birtum af honum hér.


Annað í fréttum er að Hraunar er seldur til Þýskalands. Verður hann þó á Íslandi eitthvað fram á vor eða sumar. Óskum við nýjum eiganda góðs gengis með hestinn. 


Hraunar með Firmabikar Grana sem hann vann 2011

14.12.2011 21:23

Desemberblogg

Þá er komið að því að setja inn eina blogg færslu eða svo. Það er ágætt að fá athugasemdir um bloggleysi í athugasemdakerfið frá Ása á Stórutjörnum. Þá veit maður að einhver er að fylgjast með. :o)


Í byrjun nóvember færðum við þjálfunarhrossin okkar úr póstnúmeri 640 yfir í 641, nánar tiltekið í Torfunes. Þar leigjum við hjá Didda pláss fyrir 5 hross og verður að segjast að það er frábært að geta unnið með hrossin í þeirri frábæru aðstöðu sem þar er búið að byggja upp. Svo maður tali nú ekki um að geta þjálfað í hvaða veðri sem er í reiðhöllinni. Það verður að segjast að Traðagerði hentar mjög illa þeim hrossum sem stefnt er með í kynbótadóm.


Þau hross sem eru í Torfunesi eru í aldursröð HraunarOrrason, Hella Rökkvadóttir, Hrauney Aronsdóttir, Freyja Klettsdóttir og Stuðlar DraumsAronsson. Stuðlar er yngstur þeirra á fjórða vetur. Hann fer vel af stað og ljóst að það verður stutt að sækja töltið þegar að því kemur. Einnig gengur vel með hinar merarnar og er stefnt með öll fjögur í dóm í vor. Ég mun setja inn myndir þegar veður gefst til að taka upp.


Annars er það að frétta af reiðhöll Grana og Þjálfa í Saltvík að það styttist í að hún verði hæf til brúkunar. Vinnukvöld var tekið 8 desember síðastliðinn þar sem upp voru settir battar og festingar á veggi til að hengja hross á. Hér að neðan eru tvær myndir frá því kvöldi.


Svo að lokum smá myndband sem ég setti saman þegar Stuðlari var sleppt í merar 15. júní í sumar. Það vantar ekki orkuna og gleðina að komast í slíkan lúxus. Alls voru 10 merar staðfestar með fyli frá honum sumar og verður gaman að sjá útkomuna næsta vor.


  • 1

teljari