25.08.2011 16:23

Sumarið '11

Þá er sumarið að renna á enda og því upplagt að seta inn smá sumarfærslu.

Ræktunar afrek sumarsins var á Landsmótinu þar sem hestur úr okkar ræktun, Kamban frá Húsavík, sigraði barnaflokkinn með yfirburðum. Glódís Rún Sigurðardóttir sat hestinn og áttu þau frábæra sýningu sem þau fengu 8,83 fyrir. Hægt er að sjá fleiri myndir af Glódísi og Kamban í úrslitum í myndaalbúmi.

Við sýndum í sumar 3 hross. Hraunar var sýndur á Hellu og hækkaði í aðaleinkunn úr 8,15 í 8,21. Hann fékk meðal annars 9 fyrir tölt og vilja og geðslag, 8,5 fyrir stökk, fegurð í reið, fet og hægt stökk og hækkaði sig um heilann fyrir brokk í 7,5. Því miður varð hann hálf fjórtaktaður á skeiði og fékk 7 fyrir það. Áður hafði hann fengið 8 fyrir þann eiginleika 5 vetra.

Mæðgurnar Bjarklind og Berglind voru einnig  sýndar á síðsumarsýningu á Melgerðismelum. Bjarklind hækkaði úr 7,90 í aðaleinkunn upp í 8,11. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,37. 9 fyrir hægt tölt og vilja og geðslag, 8,5 fyrir tölt, skeið og fegurð í reið. Glæsilegur dómur á frábærri meri sem nú fer í ræktunina. Dóttir Bjarklindar og Hryms, Berglind, fór einnig í dóm og hækkaði aðaleinkunn úr 7,58 í 7,73. 8,5 fyrir tölt og vilja og geðslag og 8 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið, fet og hægt tölt. Berglind er klárhross og því ekki hægt annað en að vera ánægðir með þetta.

Einarsstaðamótið fór fram aðra helgina í ágúst að venju. Þar bar hæst að Bjarklind endaði í 6 sæti í A-flokki með einkunnina 8,45. Berglind tók þátt í B-flokki og fékk 8,21 í forkeppni. Hraunar tók þátt í keppni fyrsta skipti. Hann tók þátt í B-flokki og endaði í 4 sæti í B-úrslitum með 8,43. Efsti hestur í B-úrslitum var skör ofar með 8,50 og því mátti litlu muna.

Stuðlar hefur sinnt 16 merum í sumar og eru 7 staðfestar fengnar. Stuðlar er að fara á 4 vetur og er ætlunin að taka hann á hús á næstunni og byrja að temja hann.

Viðburðaríkt sumar á enda og við áframhaldandi tamningar í vetur og stefnan er að sjálfsögðu á Landsmót í Reykjavík 2012, hvort sem er með hest(a) eða ekki.

 


teljari