Færslur: 2009 September

26.09.2009 17:48

Hrauna frá Húsavík sýnd 2002

Hrauna var sýnd í dómi á Síðsumarsýningu á Gaddstaðaflötum 2002. Þá fórum við feðgar fræga ferð yfir Sprengisand og suður á Hellu til að sjá merina í verðlaunaafhendingu 25 ágúst. Því betur var myndavélin með í för því þetta var í síðasta skipti sem Hrauna var sýnd í dómi. Hún hlaut sannkallaðann stjörnudóm aðeins 5 vetra. 8,68 fyrir hæfileika og 8,44 í aðaleinkunn. Hún var ekki sýnd aftur vegna meiðsla sem hún hlaut stuttu fyrir landsmótið 2004.

Undan henni eigum við nú 4 afkvæmi: Hellu Rökkvadóttur, Hrauney Aronsdóttur, Stuðlar Draumsson-Aronsson og svo Adamsdóttur sem fæddist í sumar. Nánar um þau í folöld og trippi hér að ofan.

Önnur hross úr ræktun Gísla fóru í dóm 2002. Flói frá Húsavík, Freyja frá Húsavík og Hrauna frá Húsavík. Öll hlutu þau fyrstu verðlaun. Auk þess fór Hrafnar frá Húsavík í flottar tölur sama sumar úti í Þýskalandi. Fyrir þennan árangur var Gísli kjörinn ræktunarmaður ársins 2002 á svæði Eyfirðinga og Þingeyinga. Einnig var Gísli tilnefndur til Ræktunnarverðlauna ársins 2002 á landsvísu af Bændasamtökum Íslands.

Hér að neðan er Hrauna á yfirlitinu á Gaddstaðaflötum 2002. Sjá má dóminn <hér>.

Hrauna was shown in a breeding show in Gaddstaðaflatir 2002. We drove south to see Hrauna in the prize-ceremony on 25th of august. We were in luck taking the video camera with us because this was the last time Hrauna was shown in a breeding show. She scored outstanding numbers only 5 winters old. 8,68 for riding abilities and a total of 8,44. She got injured shortly before the Landsmót 2004 and was never shown again unfortunately. We have 4 offsprings from her: Hella (Rökkvi frá Hárlaugsstöðum), Hrauney (Aron frá Strandahöfði), Stuðlar (Draumur frá Lönguhlíð) and a unnamed mare from Adam frá Ásmundarstöðum which was born in july this summer. They can be viewed in the tab "Folöld og trippi" here above.

Other horses from Gísli's breeding got judged the same year. Flói frá Húsavík, Freyja frá Húsavík og Hrauna frá Húsavík. They all got first grade. This success didnt go unnoted and Gísli was voted the  breeder of the year 2002 in the north east quartern of Ísland (Eyjafjörður and Þingeyjarsýsla). Gísli was also nominated the breeder of the year 2002 nation wide.

Here below is the video of Hrauna on the overview in Gaddstaðaflatir 2002
. Se the ruling <here>.


24.09.2009 13:28

Berglind frá Húsavík


Í sumar fór hún Berglind frá Húsavík í dóm. Hún er 5 vetra undan Hrym frá Hofi (8.2) og Bjarklind frá Húsavík (7.9). Hlaut Berglind fyrir byggingu 7,81 og hæfileika 7,43. Samtals 7,58. Við teljum að hún eigi töluvert inni og því stefnum við á að sýna hana aftur í vor.

Sjá dóminn í heild <hér> og myndir af Berglind <hér>

This summer Berglind frá Húsavík went to a breeding show. Berglind is 5 winters old from Bjarklind frá Húsavík (7.9) and Hrymur frá Hofi (8.2). For conformation she got 7.81, riding abilities 7.43 and total 7.58. We belive that she has still lot to offer and she will be trained this winter and shown next summer again.

See the judging <here> and photos of Berglind <here>









    teljari