Færslur: 2009 Október

05.10.2009 20:28

Flói frá Húsavík

Flói er fjórða afkvæmi Urðar og er fæddur 1994. Hann er undan Gust frá Hóli. Hann var sýndur í kynbótadómi fyrst 5 vetra á Melgerðismelum og fékk 7.96 í aðaleinkunn. 2002 þegar hann var 8 vetra fór hann svo aftur í dóm og hlaut þá 8.15 í aðaleinkunn og þar með kominn í fyrstu verðlaun. Fyrir hæfileika hlaut hann 8.2.

Hann keppti einnig á Landsmótinu 2002 í A-flokki og komst í milliriðil. Einnig tók hann þátt í afkvæmasýningu Gusts frá Hóli á sama landsmóti. 2003 var hann seldur til Noregs og dvelur hann þar enn í góðu yfirlæti.

Hægt er að sjá nánar um Flóa inni á stóðhestar í flipanum hér að ofan. Heimasíða Flóa í Noregi >>www.islandshester.no/floi.html.

Flói is the fourth offspring from Urð frá Hvassafelli. His father is Gustur frá Hóli. He was first shown in a breeding show 5 winters old in Melgerðismelar near Akureyri and got 7.96 total. He was shown again 2002 when he was 8 winters old and got first grade, 8.15 total. For riding abilities 8.2.

He competed in Landsmót 2002 in A-flokkur. He was inces from getting to B-final. He also participated in Gustur frá Hóli offsprings show. 2003 he was sold to Norway where he still is.

More detailed information on Hraunar in the tab "stóðhestar" here above. Flói's homepage in Norway >>
www.islandshester.no/floi.html.

    teljari