Færslur: 2010 Mars
29.03.2010 21:46
Gamla myndin - Granavöllur 1986
Á þessari mynd má sjá Gísla taka við verðlaunum frá Sigurði Hallmarssyni á Granavelli 1986. Gísli er á Víði frá Víðivöllum. Víðir var kosinn glæsilegasti hestur mótsins og vann B-flokk gæðinga. Víðir var Júpíterssonur, hágengur og viljugur. Júpíter var undan Sörla frá Sauðárkróki og Venus frá Reykjum.
Gísli sýndi Víði í B-flokki á Landsmótinu 1986 og varð í 20 sæti. Hesturinn var seldur eftir mót til Noregs og keppti meðal annars á heimsmeistaramóti þar sem hann lenti í verðlaunasæti.
Víðir lónseraður á Höfðanum með gamla laginu
12.03.2010 20:41
Útreiðatúr á Mývatni
Í dag fórum við upp á Mývatn til að taka þátt í hópreið sem þar fór fram á vegum Þjálfa. Riðið var frá Selinu í Hrútey. Það er skemmst frá því að segja að veðrið var frábært, um 4°C hiti og ísinn var góður. Ég gat því miður ekki tekið með stóru myndavélina mína heldur varð ég að taka myndirnar á símann. Ég reið henni Berglind og Gísli var á Hraunari. Var met mæting og voru um 40-50 manns.
Sverrir Karlsson fararstjóri og Gísli
Við komuna í Hrútey
Boðið var upp á heitt kakó og smurt brauð
Berglind, Einar og Hraunar
07.03.2010 21:36
Hella í Tunnunni
Hér að neðan má sjá hana Hellu (Hraunu og Rökkvadóttur) í Tunnunni í Traðagerði í dag. Myndin tekin á símann minn. Allt stefnir í að hún verði hin glæsilegasta meri.
04.03.2010 23:56
Gamla myndin - Í Kirkjubæ
Á þessari mynd má sjá frá vinstri Sigurð Haraldsson hrossaræktanda í Kirkjubæ, Stefán Haraldsson og Sigurð Hallmarsson hrossaræktendur í Héðinshöfða á þeim tíma. Liggjandi í grasinu er sonur Sigurðar, Guðjón. Hér eru þeir að skoða Kirkjubæjarhrossin, en þeir keyptu töluvert af hrossum úr Kirkjubæ. |