Færslur: 2010 Apríl

20.04.2010 22:02

Gamla myndin - Feðgar á ferð


Þessar myndir eru teknar vestan við Pálshús (líklega um 1972) þar sem Haraldur og Valgerður og synir þeirra bjuggu. Þess má geta að algengt var að menn riðu heim til sín í kaffi eða mat og geymdu þá hestana í garðinum.  Hesthús Haraldar var þá úti á Höfða þar sem nú stendur vélageymsla Eyþórs Hemmerts frænda okkar.

Á fyrstu myndinni til vinstri eru þeir feðgar og nafnar, Haraldur Gíslason og Haraldur Haraldsson, sá eldri eru á hesti sínum Lýsingi sem var afburða litfallegur hestur og Haraldur yngri á þeim fræga hesti Freyfaxa frá frænda okkar Haraldi á Breiðumýri. Þess má geta að Freyfaxi var einstakur, góður reiðhestur og þægur og traustur fyrir hvern sem er. Hann var mikið notaður í reiðskólanum hér áður fyrr. Hægra megin uppi er Gísli á hesti frá Þórarni í Skarðaborg sem hann var að temja.

Á myndinni hægra megin niðri má sjá þá feðga saman, Halla Har, Harald Gísla, Stefán og Gísla. Tveir síðastnefndu eru í félagsbúningi Grana sem þá var. Eins og allir vita þá stunda Gísli og Stefán enn hestamennsku og rækta hross.



12.04.2010 16:17

Stuðlar - Notkun 2010



Sjá prófíl Stuðlars með að ýta <hér>.


05.04.2010 22:45

Tamningar


Tamningar ganga vel. Við fórum í dag og mynduðum Hraunar og Hellu. Hér að neðan má sjá afraksturinn.

Stefnt er á úrtöku fyrir Landsmót með þessi hross. Þess ber að geta að Hella er ekki mikið gerð þó lofandi sé. Hella var gangsett fyrir um þrem vikum og lofar mjög góðu. Svo verður að koma í ljós hvort það dugar inn á Landsmót. Hún er 5 vetra og lágmarkið fyrir 5 vetra hryssur á Landsmót er 8.10.

Hraunar er í góðri framför frá í fyrra. Hann hefur eflst á öllum gangtegundum og þá sérstaklega á brokki. Lágmörk fyrir 6 vetra hesta á Landsmót er 8.30 og höfum við trú á því að Hraunar nái því.

Nánari upplýsingar um Hraunar eru í flipanum "Stóðhestar" hér í valmyndinni að ofan.


.




Hella Rökkvadóttir

    teljari