20.04.2010 22:02
Gamla myndin - Feðgar á ferð
Þessar myndir eru teknar vestan við Pálshús (líklega um 1972) þar sem Haraldur og Valgerður og synir þeirra bjuggu. Þess má geta að algengt var að menn riðu heim til sín í kaffi eða mat og geymdu þá hestana í garðinum. Hesthús Haraldar var þá úti á Höfða þar sem nú stendur vélageymsla Eyþórs Hemmerts frænda okkar.
Á fyrstu myndinni til vinstri eru þeir feðgar og nafnar, Haraldur Gíslason og Haraldur Haraldsson, sá eldri eru á hesti sínum Lýsingi sem var afburða litfallegur hestur og Haraldur yngri á þeim fræga hesti Freyfaxa frá frænda okkar Haraldi á Breiðumýri. Þess má geta að Freyfaxi var einstakur, góður reiðhestur og þægur og traustur fyrir hvern sem er. Hann var mikið notaður í reiðskólanum hér áður fyrr. Hægra megin uppi er Gísli á hesti frá Þórarni í Skarðaborg sem hann var að temja.
Á myndinni hægra megin niðri má sjá þá feðga saman, Halla Har, Harald Gísla, Stefán og Gísla. Tveir síðastnefndu eru í félagsbúningi Grana sem þá var. Eins og allir vita þá stunda Gísli og Stefán enn hestamennsku og rækta hross.