06.05.2010 14:37
Fyrirhugað álver Alcoa við Bakka
Á dögunum kom út frummatsskýrsla vegna fyrirhugaðs álvers Alcan við Bakka. Ég fór á fund í Mývatnssveit á vegum vinnu minnar og fékk þar kynningu á þessu umfangsmikla verkefni sem fyrirhugað er hér við Húsavík. Þetta verkefni snertir allt samfélagið og þar eru hestamenn á Húsavík ekki undanskildir.

Ljóst er að reiðleiðin út í Bakka verður ekki nothæf eins og hún er núna því framkvæmdasvæði hins fyrirhugaða álvers nær yfir meginpart leiðarinnar eins og sést á myndinni hér að ofan. Hér bætti ég við með rauðum lit núverandi leið. Þó má geta þess að ekki er búið að hanna lokaútlitið á álverinu og er því stuðst við útlit álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði á þessum myndum ef ég man rétt. Í niðurstöðum skýrslunnar á mati á áhrifum á gróður og dýralíf segir; "Áhrif á gróður og dýralíf eru frá því að vera nokkuð neikvæð innan þynningarsvæðis næst álverinu til óveruleg". Ennfremur að "hætta á eitrunaráhrifum á grasbíta er mjög lítil".
Hér að neðan er önnur mynd.

Framtíðarsvæði hestamanna á Húsavík er þó hugsað í landi Saltvíkur svo það sé ljóst í þessum pælingum. Hestamannafélagið Grani er að berjast fyrir því að koma hesthúsabyggð á aðalskipulag Norðurþings svo hægt verði að hefja framkvæmdir þar. En hvenær hestamenn munu flytja sig úr Traðagerði í Saltvík verður að koma í ljós. Byggja þarf nýja byggð frá grunni og ekki er víst að allir geti farið í svo stóra fjárfestingu á næstu árum.
Að lokum bendi ég á að álverið mun ekki sjást þegar komið er til Húsavíkur að sunnan. Þó verða mjög sýnileg tvö 38 metra breið og 46 metra há súrálssíló sem munu standa við hina nýju höfn sem kemur norðan við nýja garðinn. Sjá afstöðumyndir hér að neðan, önnur tekin fyrir ofan Baukinn og hin af sjó. Vil taka fram að á myndina vantar færiböndin upp á tankana sem flytja súrálið ofaní tankana.

Að lokum vil ég benda á að hægt er að skoða skýrsluna í heild sinni á þessari slóð http://www.alcoa.com/iceland/ic/info_page/bakki.asp

Skrifað af einar@hhestar.is