25.05.2010 20:19

Hér verða raktar ættir Draums frá Lönguhlíð (mynd til hægri), föður Stuðlars.
Móðir Draums, Sædís frá Stóra-Sandfelli 2, er fædd 1998 og í eigu þeirra Hallfreðar Elíassonar og Gunnhildi Garðarsdóttur sem búa í Lönguhlíð við Egilsstaði. Sædís er ljósrauðblesótt, glófext eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Sædís (mynd til hægri) vakti strax mikla athygli í höndum Hans Kjerúlf. Hún kom fram meðal annars í reiðhöllinni á Sauðárkróki og vakti þar mikla athygli. Sædís fór í dóm fyrst á héraðssýningunni á Stekkhólma í júní 2003 og fór beint í fyrstu verðlaun með 8,31. Á fjórðungsmóti Austurlands fór hún aftur í dóm og hækkaði aðaleinkunn í 8,41. Hún fékk mjög góðann byggingardóm, 8,33. Þar af 9 fyrir háls/herðar/bóga, og 8,5 fyrir samræmi og prúðleika. Sædís er stór og myndarleg hryssa með 141 cm á herðar og lengdin 145.
Sædís hlaut fyrir hæfileika 8,47. Þar af 9,5 fyrir fegurð í reið og í umsögn segir mikið fas, mikil reising, góður höfuðburður og mikill fótaburður. Hún fékk 9 fyrir tölt, hægt tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag. Þessi hryssa vakti geysilega mikla athygli á fjórðungsmótinu eins og gefur að skilja. Hans Kjerúlf sýndi Sædísi og þessi orð vildi Hans Kjerúlf láta eftir sér hafa:
"Ljúf og góð, frábært hross og alltaf með mann í reið. Öskuviljug ..."
Sædís er undan heiðursverðlaunahestinum Huga frá Hafsteinsstöðum og Glódísi frá Stóra-Sandfelli.
Um móður Sædísar, Glódísi frá Stóra-Sandfelli, má segja að þar liggi að baki mjög sterkar ættlínur. Glódís er undan Hrafnssyninum Ringó frá Stóra-Sandfelli og Mánadótturinni Jónínu frá Stóra-Sandfelli. Móðir Ringós var Hrefna frá Stóra-Sandfelli sem var undan Neista frá Skollagróf og Sörladótturinni Elísu frá Stóra-Sandfelli. Elísa fékk í dómi 8.65 fyrir hæfileika á Landsmótinu 1978.
Stuðlar er búinn að vera hjá okkur í Traðagerði í um 20 daga. Hann hafði aldrei verið á húsi en var fljótur að verða spakur. Systur hans, Hella og Hrauney, eru einnig algjörir öðlingar í umgengni.
Stuðlar er lofthár og með langann og grannan fallegan háls. Kverkin sérstaklega mjúk. Stuðlar notar brokkið mest en töltir þegar svo ber undir. Stuðlar er léttur í spori og hreyfingafallegur.
Nokkuð hefur verið pantað undir Stuðlar í sumar. Hvetjum við þá sem hafa pantað að hafa samband. Stuðlar verður á Húsavík fram í miðjan júní og eftir það á Blönduósi.
Síða Stuðlars:
Stuðlar frá Húsavík
|
Skrifað af einar@hhestar.is