Færslur: 2010 Febrúar
22.02.2010 21:06
Tenglasafn
Vanti tengil eða tengill virkar ekki einhverra hluta vegna þá bið ég ykkur vinsamlegast um að senda mér línu á gislason.einar@gmail.com.
Í dag var einnig ný slóð fyrir síðuna tekin í gagnið. Þá er ný vefslóð síðunnar www.hhestar.is og tekur við af hofdahestar.123.is. Hér er einfaldleikinn hafður að leiðarljósi þegar kom að því að velja þessa slóð.
12.02.2010 15:14
Gamla myndin
Gamla myndin - Að loknu námskeiði
|
Hér hafa þátttakendur stillt sér upp að loknu reiðnámskeiði hjá Alberti Jónssyni 1982(?). Albert var einn mesti reiðsnillingur Íslands á sínum tíma. Hann þjálfaði meðal annars Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og sýndi son hans Eldjárn frá Hvassafelli. Albert bjó í Svarfaðadal á þessum tíma og þjálfaði þar meðal annars Hervar frá Sauðárkróki og Vöku frá Brennigerði sem hann og sýndi 1981 og var hún hæst dæmda kynbótahross landsins það árið. Frá vinstri talið: Albert Jónsson, Pálmi Pálmason á hesti frá Kúfhóli, Stefán Haraldsson á Hrana frá Kirkjubæ, Ingólfur Jónsson á Tvisti, Gísli Haraldsson á Drottningu Hrafnsdóttur 802 frá Glæsibæ, öðlingurinn Magnús heitinn Bjarnason á Ljúf, Þórður Adamsson á Skyldi og Ásberg Salómonsson á Litla-Rauð. |
07.02.2010 21:26
Á ferð norður
|
Öllu rólegar er farið af stað með Hrauney. Hún virðist ekki kippa sér upp við nokkurn skapaðann hlut. Aðeins hefur verið farið á bak á hana inni í hringgerði og hefur það gengið vel. Þjálfun fer rólega af stað og verður bara að koma í ljós hvort hægt verði að koma henni í kynbótadóm í sumar. |
- 1