Færslur: 2010 September

23.09.2010 21:50

Síðsumarblogg

Jæja, þá skylst okkur að flestir séu orðnir nokkuð vel að sér í ættum Stuðlars sem voru raktar hér í síðustu bloggfærslu í júní. Allavega eru fréttaþyrstir hestamenn innanlands sem utan farnir að spyrja frétta og verðum við við því hér með.

 Við fengum 3 folöld í sumar. Fyrst kastaði Sólrún Steinsdóttir 26. júní rauðu merfolaldi sem verður grátt. Sóley Markúsardóttir kastaði svo viku síðar rauð- höttóttu stjörnóttu merfolaldi. Bæði þessi folöld eru undan Hauki Álfssyni frá Lönguhlíð. Fyrir þá sem hafa legið yfir ættum Stuðlars í bloggfærslunni á undan ættu því að átta sig á því að þeir eru sammæðra, undan hestagullinu Sædísi frá Stóra-Sandfelli 2. Hér að neðan er mynd af honum sem ég fékk lánaða af facebook síðu Álfs frá Selfossi, og einnig af folöldunum. Þriðja folaldið var heimaræktað undan Frigg og Hraunari. Það er rauðstjörnóttur foli sem okkur lýst vel á.


 Haukur frá Lönguhlíð    F: Álfur frá Selfossi   M: Sædís frá Stóra-Sandfelli 2


Ónefnt frá Húsavík   F: Haukur frá Lönguhlíð   M: Sólrún frá Húsavík


Ónefnt frá Húsavík   F: Haukur frá Lönguhlíð   M: Sóley frá Álftanesi


Ónefndur frá Húsavík    F: Hraunar frá Húsavík   M: Frigg frá Hofi

Hestapestin olli því að lítið var hægt að gera í sumar. Ætlunin var að sýna Hraunar og Berglindi í kynbótadómi en þau voru bæði með einkenni af flensunni og vildum við ekki taka neina áhættu með þau. Því verða þau að bíða fram á næsta sumar. Bjarklind var hinsvegar við góða heilsu þegar Einarsstaðamótið fór fram í ágúst og þrátt fyrir formleysi þá stóð hún sig frábærlega. Keppti Gísli á Bjarklind í A-flokki og komust þau í B-úrslit sem þau unnu. Í A-úrslitum var farið merin orðin mjög þreytt sem olli því að skeiðsprettirnir tókust ekki sem skyldi. Samt sem áður vann hún sig upp um 2 sæti í A-úrslitum og endaði í 6 sæti sem verður að teljast glæsilegur árangur. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá mótinu.

A úrslit

1 Tristan frá Árgerði Stefán Birgir Stefánsson 8,67

2 Sindri frá Vallanesi Baldvin Ari Guðlaugsson 8,50

3 Týr frá Litla-Dal Þorbjörn Hr. Matthíasson 8,35

4 Sísí frá Björgum Viðar Bragason 8,32

5 Hvinur frá Litla-Garði Ásdís Helga Sigursteinsdóttir 8,30

6 Bjarklind frá Húsavík Gísli Haraldsson 8,22

7 Týja frá Árgerði Gísli Steinþórsson 8,21

8 Úði frá Húsavík Þór Jónssteinsson 0,00

  • 1

teljari