Færslur: 2010 Október

26.10.2010 21:12

Tamningar haust 2010

1 september tókum við á hús Hrauney Aronsdóttur og Freyju Klettsdóttur. Þær höfðu verið gerðar rétt reiðfærar síðastliðinn vetur. Þær áttu það sameiginlegt að vera mjög klárgengar og tóku vart töltspor í upphafi tamningar. En  í haust hafa þær báðar tekið miklum framförum og er töltið þegar komið fyrirhafnarlaust. Enda gat ekki annað verið en það lægi grunnt á því enda af miklum tölthrossum. Hrauneyjar megin Hrauna með 9 og Aron 9,5 Freyju megin er Klettur með 8,5 og Ingólfur Arnarson sagði að töltið í Frigg hefði verið upp á lágmark 9. En Frigg er ósýnd því hún veiktist mjög illa.

 Þær er mjög ólíkar í framgöngu. Hrauney sættist við beislið um leið meðan Freyja stóð föst í beislinu eins og hún á kannski kyn til. Seinna í september bættust við Berglind, hinn frægi Bakka-Brúnn og Hraunar sem er á myndinni hér til hægri. Og um daginn náðum við í Bjarklind út í Saltvík og er hún komin á járn. Síðastliðinn laugardag kom svo Hella úr sneypulegri ferð suður, en hún var hjá Möller í sumar og kom þaðan geld því miður. Hella var járnuð í dag og þess má geta að hún sýnist óhölt, en hún heltist í vor og var hölt þegar hún fór suður.

 Því er hesthúsið fullskipað. 7 hross á járnum. Reyndar hefur pestin verið að stinga sér niður aftur hjá okkur og hafa Hrauney og Freyja verið frá í 3 vikur. Það eru 7 mánuðir í úrtöku fyrir landsmót og því er eins gott að halda vel á spöðunum. Af þessum 7 á húsi þá stefnum við með 6 í kynbótadóm á næsta ári ef allt gengur upp.

Berglind og Bjarklind í sumar

Myndirnar hér að neðan voru teknar 10.10.10. þegar við vorum að ríða út í haustblíðunni sem var einstök þetta haustið. Á myndinni er Einar á Hraunari.

  • 1

teljari