Færslur: 2011 Febrúar

01.02.2011 21:29

Nýársfærslan

Jæja, hér koma smá fréttir. Tamningar ganga ágætlega þó tíðarfarið hafi sett strik í reikninginn í janúar. Þá snjóaði meira en hefur gert undanfarin ár og þurftum við að moka okkur inn í hesthús í heila viku. Svo mikinn snjó setti í gerðið að hestarnir urðu að gera sér lítið frímerki að góðu fyrir framan mannhæða háann skafl. Þegar hríðinni slotaði þá fengum við Trausta Sverris hjá Höfðavélum til að hreinsa gerðið hjá Höfðahestum. Meðfylgjandi myndir eru af þeim átökum. Sjá fleiri myndir í janúar albúmi á myndasíðu.

 

Hrauney Aronsdóttir

Bakka Brúnn og Stuðlar Hraunuson

Maður finnur fyrir þörfinni á að hafa reiðhöll við höndina þegar ekki viðrar til útreiða. Hér í Traðagerði er nefnilega aðeins einn reiðleið norður í Bakka og ef hún er ófær er lítið gert. Þó er stundum hægt að nýta sér að ríða um götur bæjarinns þegar snjór er yfir götunum. Annars sýnist manni ágætur gangur vera í hinni nýju reiðhöll sem rís í Saltvík. Búið er að klæða hana að mestu og eftir á að ganga frá endunum. Myndin er tekin 27. janúar.

 

Reiðhöll Grana og Þjálfa rís í Saltvík

Hraunar og Hella fara í byrjun mars til Bjarna Jónasar á Narfastöðum þar sem þau verða fram að Landsmóti. Hrauney og Freyja taka góðum framförum og verður spennandi að sjá hvað þær munu gera í sumar. Töluverð umræða hefur verið um að skapgerð afkvæma Arons frá Strandarhöfði, það er að þau séu körg og erfið. Ekki er hægt að segja að það sé vottur af því í Hrauney okkar. Hún er einstaklega taugasterk og viljug til að þóknast manni. Hrauney var mjög klárgeng til að byrja með en er öll að styrkjast á tölti og ekki langt í skeiðið virðist vera. Hin hrossin á járnum, mæðgurnar Berglind og Bjarklind, verða einnig sýndar í sumar og gengur bara vel með þær.

Spáð og spekúlerað. Gísli, Ingólfur og Karin

  • 1

teljari