Færslur: 2011 Júní

26.06.2011 20:18

Kamban á Landsmóti 2011

Það berast ánægjulegar fréttir frá Landsmótinu á Vindheimamelum þar sem Glódís Rún Sigurðardóttir og stóðhestur úr okkar ræktun, Kamban frá Húsavík, eru efst eftir forkeppni með 8.70 í einkunn í barnaflokki. Glódís er systir Arnars Bjarka sem hefur verið að gera góða hluti á hestinum í keppni undanfarin ár.

 

Mynd: Hestafréttir

Kamban er undan Stæl Orrasyni frá Miðkoti og Urð frá Hvassafelli sem var undan Hraunari frá Sauðárkróki og Musku frá Hvassafelli. Urð hefur gefið okkur úrvalshross eins og Ófeig frá Húsavík, Flóa frá Húsavík, Bjarklind frá Húsavík, Hraunar frá Húsavík að ógleymdri Hraunu frá Húsavík sem flestir ættu að kannast við. Hraunar frá Húsavík var sýndur af Þórði Þorgeirssyni í kynbótadómi í byrjun júní og hlaut 8.21 í aðaleinkunn, þar af 9 fyrir tölt og vilja og geðslag. Hraunar er hestur fyrir hvern sem er og er til sölu. Nánari upplýsingar um Hraunar í síma 898-2207 hjá Gísla Haraldssyni eða á einar@hhestar.is

Gísli og Hraunar

19.06.2011 22:06

Júnífærsla

Ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað hér. Eftir frábæra tíð í apríl og fram í miðjan maí kom maíhretið með snjókomu og kuldakafla sem teygði sig inn í júní. Þá var brugðið á það ráð að leigja aðstöðu í Torfunesi fyrir Hraunar, Bjarklindi og Berglindi svo hægt væri að temja hrossin áfram. Þökkum við Didda í Torfunesi fyrir að taka vel á móti okkur þar. Það er frábært að komast í svona fullkomna aðstöðu eins og er í Torfunesi og verður gaman þegar reiðhöllin í Saltvík kemst í gagnið hjá okkur.  

Hraunar fór í kynbótadóm á Hellu þann 1. júní síðastliðinn og tókst sú sýning bara vel. Þórður Þorgeirsson sýndi Hraunar. Hann hækkaði í aðaleinkunn úr 8.15 í 8.21. Hraunar fékk 9 fyrir tölt og vilja og geðslag, 8,5 fyrir stökk, hægt stökk, fegurð í reið og fet, 7,5 fyrir brokk og 7 fyrir skeið. Því miður þá náði hann ekki að laga skeiðeinkunina á yfirlitinu en það hefði þýtt farseðil á Landsmótið. Hraunar er til sölu og allar frekari upplýsingar veitir Gísli Har í síma 898-2207. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið einar@hhestar.is

Stuðlari var sleppt í hólf með nokkrum merum á þriðjudaginn síðastliðinn. Hann hefur þroskast mikið í vetur og var gaman að fylgjast með honum í kringum merarnar. Stuðlar er hálslangur, bolléttur og háfættur. Vilji einhver forvitnast um hann nánar er hægt að hafa samband við Gísla í síma 898-2207.

Hægt er að sjá fleiri myndir í albúmi með því að ýta <hér>.

  • 1

teljari