|
Urð sáu þeir bræður, Gísli og Stefán, sem folald í stóðrétt í Eyjafirði. Keyptu þeir hana af Einari Benediktssyni sem þá átti Hvassafell. Hún var einstaklega fallegt og myndarleg folald.
Hún er undan Hraunari frá Sauðárkróki sem drapst þriggja vetra. Hraunar var lengi kallaður "stóðhestur aldarinnar" og undan honum hafa komið mörg verulega góð hross eins og Kolgrímur frá Kjarnholtum, Kolskeggur frá Ásmundarstöðum, Örn frá Akureyri og Von frá Bjarnastöðum, móðir Markúsar frá Langholtsparti.
Móðir urðar var Muska frá Hvassafelli, undan Náttfara frá Ytra-Dalsgerði. Muska var tamin og sýnd og fékk þokkalegann dóm.
Hún eignaðist slysafolald tveggja vetra, Ófeig frá Húsavík, og aftur fjögra vetra, Goða frá Nesi. Hún var sýnd fyrst 1990 [7.73], svo 1991 [7.92] og loks 1992 á héraðssýningu í Víðidal í Reykjavík [8.22].
Urð hefur reynst frábær ræktunarmeri. Hrossin undan henni eru með einstakt geðslag og hæfileikamikil. Merarnar sem við eigum undan henni, Hrauna og Bjarklind, eru þær merar sem lögð er mest áhersla á í ræktuninni. Einnig er enn í okkar eigu graðhesturinn Hraunar frá Húsavík sem er albróðir Hraunu.
Urð var felld 3. nóvember 2008, þá 24 vetra gömul eftir veikindi. Hún hvílir í Héðinshöfða á Tjörnesi.
|