Ófeigur frá Húsavík

Ófeigur frá Húsavík
IS1987166640
F: Óþekktur



M: Urð frá Hvassafelli (8.22)
MF: Hraunar frá Sauðárkróki
MM: Muska frá Hvassafelli (7.73)
Upplýsingar

Ófeigur er fyrsta folald Urðar. Ófeigur er undan Náttfarasyni úr Garði í Aðaldal. Ófeigur var gríðarlega stór og léttbyggður með fallegt brjóst og háls. Jón Árni Sigfússon úr Vogum frumtamdi hann. Ófeigur sýndi fljótlega tölt með miklum hreyfingum. Gísli þjálfaði svo Ófeig á sjötta vetur og var það skemmtilegt verkefni sökum þess hve gaman var að sitja á honum. Ófeigur kom fram á fjórðungsmóti á Vindheimamelum 1993 og lenti þar í öðru sæti. Hann vakti gríðarlega athygli á mótinu fyrir útlit og fas á tölti. Ófeigur slasaðist því miður á fæti á áttunda ári og var felldur tveim árum síðar.

IS1987166640
Litur:
Móálóttur
Eigandi:
Gísli Haraldsson
Ræktandi:
Gísli Haraldsson

teljari