Vaka frá Brennigerði

Vaka frá Brennigerði
IS1974257236
F: Hrafn frá Holtsmúla (8.56)
FF: Snæfaxi frá Páfastöðum
FM: Jörp frá Holtsmúla
M: Mósa frá Brennigerði (8.28)
MF: Goði frá Álftagerði (8.32)
MM: Molda frá Hellisholtum
Hæsti dómur 1981

Aðaleinkunn: 8.21

Sköpulag
8.05
Kostir
8.37
Höfuð
8.5
Tölt
8.0
Háls/herðar/bógar
8.0
Brokk
8.0
Bak og lend
8.0
Skeið
9.0
Samræmi
8.0
Stökk
8.5
Fótagerð
8.0
Vilji
8.5
Réttleiki
8.0
Geðslag
8.0
Hófar
8.0
Fegurð í reið
8.5

Upplýsingar

Önnur ræktunarmeri Gísla var hryssan Vaka frá Brennigerði [8.21] í Skagafirði, en hún var af Goða línunni, undan Hrafni frá Holtsmúla og Mósu frá Brennigerði, fyrstu verðlauna hryssu sem var undan Moldu frá Hellisholtum, Blakksdóttur 129 frá Árnanesi, og bróður sínum, Goða frá Álftagerði, sem var einnig undan Moldu. Mósa var með 8,28 í aðaleinkunn, þar af 8,50 fyrir byggingu og 9,0 fyrir tölt.


Undan Vöku er Höfði frá Húsavík, sem var einn aðal keppnishestur Sigurbjörns Bárðarsonar um árabil. Á honum varð Sigurbjörn heimsmeistari í fimmgangi og gæðingaskeiði og auk þess samanlagður sigurvegari á HM 1993 í Hollandi. Sá árangur átti hvað mestan þátt í að Sigurbjörn var kjörinn íþróttamaður ársins á Íslandi það ár.

Vaka er einnig móðir Amals frá Húsavík, sem hefur vakið athygli fyrir mikið fas og fótaburð og varð m.a. í öðru sæti á Ístölti í Skautahöllinni árið 2000. Sigurbjörn keypti þennan hest af mér og seldi hann síðan Hallgrími Jóhannssyni í Keflavík. Undan henni er einnig stóðhesturinn Eldur frá Húsavík, Hervarssonur. Hann er nú á Störtal í Þýskalandi og hefur hlotið 1. verðlaun og varð Norður-Þýskalandsmeistari í tölti 1995, svo eitthvað sé nefnt. Síðasti stóðhesturinn undan Vöku er Hrafnar frá Húsavík, undan Hrannari frá Höskuldsstöðum, en hann hefur vakið verulega athygli sem klárhestur í Þýskalandi undanfarin tvö ár.

IS1974257236
Litur:
Rauðblesótt, glófext
Eigandi:
Gísli Haraldsson
Ræktandi:
Stefán Stefánsson
Afkvæmi
IS1982166008 Höfði frá Húsavík
F: Börkur frá Sandhólum
8.07
IS1984166640 Eldur frá Húsavík
F: Hervar frá Sauðárkróki
--
IS1985266640 Eldvaka frá Húsavík
F: Hervar frá Sauðárkróki
--
IS1987266640 Vakning frá Húsavík
F: Háleggur (Glitfaxi) frá Ási I
--
IS1988166641 Amal frá Húsavík
F: Röðull frá Ási I
--
IS1989266641 Kvöldvaka frá Nesi
F: Dreyri frá Álfsnesi
7.6
IS1990166641 Hugi frá Húsavík
F: Hjörtur frá Tjörn
--
IS1991266640 Litla-Vaka frá Húsavík
F: Stormur frá Hóli v/Dalvík
--
IS1992166640 Hafsteinn frá Húsavík
F: Þyrill frá Aðalbóli
--
IS1994266640 Ljósvaka frá Húsavík
F: Álmur frá Sauðárkróki
--
IS1995166640 Hrafnar frá Húsavík
F: Hrannar frá Höskuldsstöðum
8.18
IS1996166640 Grásteinn frá Húsavík
F: Steinn frá Húsavík
--

teljari